- 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
- 28.08.2010 Summer is almost gone - Welcome back to The Age of Aurora
- 12.06.2010 Summer is here
- 28.05.2010 Become a fan on Facebook & win Prizes. Twitter, NEW Youtube video & Flickr too!
- 04.05.2010 Latest Eyjafjallajökull volcano update!
- Meira..
Upplýsingar um Hótel Rangá
Hótel Rangá er staðsett mitt á milli Hellu og Hvolsvallar við þjóðveg eitt, um klukkustundar akstur frá Reykjavík. Hótel Rangá er fyrsta flokks lúxus sveitahótel, byggt í bjálkastíl. Það uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til fjögurra stjörnu hótels. Staðsetningin er frábær, við erum á bakka Eystri Rangár, sem er þekkt laxveiðiá. Opið er allt árið, við veitum mjög metnaðarfulla þjónustu og reynum eftir megni að uppfylla þarfir og óskir allra viðskipavina okkar.
Á hótelinu eru síðan 51 herbergi, þar af sjö svítur. Konunglega svítan er sú stærsta, eða 72 fm að stærð. "World Pavilion" svíturnar á hótelinu eru hannaðar eftir heimsálfunum sjö og allt efni, listaverk og húsgögn koma frá viðkomandi heimsálfu. Við leggjum mikla áherslu á veitingarnar, erum orðin nokkuð þekkt fyrir mjög góðan mat. Hótelið er búið koníakstofu, einnig bar og ráðstefnusal, utandyra eru heitir pottar - þar sem þú getur notið norðurljósanna á vetrarkvöldum.
Til gamans má geta þess að það er þriggja metra hár hvítabjörn, sem nefnist Hrammur, sem býður þig velkomin á Hótel Rangá. Hrammur stendur mikilfenglegur upp á endann í andyri hótlelsins og tekur þar á móti gestunum. Hrammur er aðeins forsmekkurinn að notalegri dvöl, sem bíður þín hér á hótelinu.
Ísland er einstakt að því leyti að hér eru víða heitir hverir, bæði stórir og smáir. Að baða sig í heitri náttúrulaug er bæði endurnærandi og hressandi. Á Hótel Rangá eru tveir heitir pottar, vatnið í þeim er heitt frá náttúrunnar hendi, gestum hótelsins býðst að slappa þar af um leið og þeir njóta útsýnisins til Eystri Rangár, sem rennur þar hjá. Það er einstök vellíðunartilfinningin, sem gagntekur þig í heitu pottunum að vetrarlagi, þegar kalt er í veðri, en þú horfir á norðurljósin dansa um stjörnubjart himinhvolfið, þú hlustar á þögnina og kyrrð náttúrunnar - þetta er eitthvað sem aðeins við Íslendingar eigum.
Hótel Rangá er reyklaust. Hótel Rangá er opið allt árið ef frá eru taldir nokkrir dagar um jólin. Hótelið er búið allri nauðsynlegri tækni nútímalegs ráðstefnuhótels, svo sem háhraða þráðlausu netsambandi.
Það er metnaður okkar að mæta persónulegum þörfum hvers og eins af sveigjanleika og kurteisi, - að gera þér dvölina eins ánægjuleg og okkur er framast unnt.
Sími: 487-5700 Fax: 487-5701 Netfang: hotelranga@hotelranga.is
Erum í samstarfi við Iceland nature break og www.south.is og síðast en ekki síst The special hotel of the world



