Gisting á Hótel Rangá
Á Hótel Rangá eru 51 herbergi, sem eru fallega hönnuð með áherslu á þægindi og lúxus. Þar á meðal eru í boði glæsilegar svítur en hönnunin á þeim tekur mið af heimsálfunum sjö og eru þær nefndar eftir þeim. Stærsta svítan er Brúðarsvítan (“The Royal suite”) og er með þeim glæsilegri á landinu.
Standard herbergin eru búin helstu nútíma þægindum til að gera dvölina sem ánægjulegasta. Fallegt útsýni er að Heklu eða Eystri-Rangá.
Deluxe herbergin eru flest búin tvíbreiðu hjónarúmi ásamt helstu nútíma þægindum. Falleg sýn er að Heklu eða Eystri-Rangá.
Smekkleg hönnun heimsálfusvítanna gleður svo sannarlega augað og allur útbúnaður í svítunum er glæsilegur. Notalegt umhverfi heimsálfusvítanna uppfyllir ströngustu kröfur viðskiptavina.
Vinsamlegast athugið að hægt er að fá aukarúm í Deluxe herbergjum og Svítum.
Verð fyrir aukarúm: 2-12 ára 2.800.- kr per nótt. 12 ára og eldri 5.500.- kr per nótt. (morgunverður innifalinn í verði)
Hægt er að fá barnarúm (0-2 ára) í öll herbergi án endurgjalds.
Í sumum Svítum er hægt að fá fleiri en eitt aukarúm.
Heitu pottarnir sem eru staðsettir fyrir utan hótelið fullkomna dvölina.
Hótelið er opið allt árið, fyrir utan nokkra daga í kringum jólin.
Vinsamlega hafið samband við starfsfólk hótelsins til að fá upplýsingar um verð á gistingu.
hotelranga@hotelranga.is
Sími: 487 5700
Fax: 487 5701



