Fundir og Ráðstefnur
Hótel Rangá býður upp á fyrirtaks aðstöðu fyrir ráðstefnur, fundi, árshátíðir og aðra mannfagnaði.
Á annarri hæð hótelsins er glæsileg fundaraðstaða. Ráðstefnusalirnir tveir hafa nýlega verið endurnýjaðir og býr hótelið yfir fyrsta flokks aðstöðu til fundarhalds fyrir rúmlega 100 manns og veitingaaðstöðu fyrir 200 manns. Salirnir eru mjög þægilegir og útbúnir nýjustu tækjum fyrir árangursríka fundi í þægilegu umhverfi. Hótel Rangá býður einnig upp á fundaraðstöðu í svítunum fyrir minni fundi.

Veitingaaðstaðan rúmar allt að 200 manns. Fallegt útsýni er frá veitingastaðnum yfir bakka Eystri-Rangár, ásamt stórkostlegu útsýni yfir eldfjöll og jökla frá annarri hæð. Matseðillinn er glæsilegur með úrvali rétta sem gleðja bragðlaukana. Áhersla er lögð á persónulega og faglega þjónustu og hefur orðspor veitingastaðarins vaxið hratt síðustu misseri.
Hótel Rangá býður viðskiptavinum sínum upp á að hafa sérstakan tengil sem aðstoðar á allan mögulegan hátt, sér um að fundarhaldið gangi snurðulaust fyrir sig, getur sinnt fundastjórn og veitt aðstoð við að efla liðsheildina á fundum og ráðstefnum. Við getum aðstoðað við val á afþreyingu í nágrenni hótelsins eða komið með hugmyndir að leikjum til að auka stemningu innan hópsins.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir um alla þá viðburði sem þið gætuð hugsað ykkur, t.a.m. ferðir til að byggja upp liðsheild, árshátíðir, hvataferðir, ættarmót, afmæli, brúðkaup og veislur við öll tilefni. Við getum skipulagt matreislu- og vínsmökkunarnámskeið o.m.fl. Dæmi um sérstakar óskir viðskiptavina eru: Gestafyrirlesarar, sagnamenn, víkingar, trúbadorar, lifandi tónlist undir borðhaldi, ýmis konar leikir, plötusnúður o.fl.
Fundasalir á Hótel Rangá og möguleikar á uppsetningu
Tæki og búnaður til fundahalda (innifalið í salarleigu): skjávarpi, færanlegir hljóðnemar, flettitafla, laser penni, skjátjald, frír netaðgangur, skrifblokkir og pennar.
Annar útbúnaður til leigu: DVD / Video spilari með hátölurum, Plasma skjár.
Vinsamlegast pantið skjávarpa með sjö daga fyrirvara.
Athugið að verð getur breyst án fyrirvara. Uppsett verð á fundaherbergjum er miðað við einn dag og gildir einungis þegar þau eru notuð fyrir ráðstefnur eða fundi.
Sjá fyrirtækjatilboð hér.
Afþreying á Suðurlandi
Fjölbreytt afþreying er fyrir gesti allt árið um kring og geta starfsmenn hótelsins skipulagt skemmtiferðir ef áhugi er fyrir hendi. Hafið samband og við munum leiðbeina ykkur um val á afþreyingu.
Afþreying allt árið:
- fjórhjól
- jeppaferðir þar sem gestir aka sjálfir
- jeppaferðir með bílstjóra
- 4x4 vetarævintýri á Discovery jeppum
- hellaskoðunarferðir
- flug- og þyrluflugferðir
- jöklaskoðunarferðir
- gönguferðir
- hestaferðir
- söfn í héraðinu
Afþreying hluta úr ári:
- fljótaferðir (maí- október)
- golf (maí – október)
- snjósleðaferðir (maí – nóvember)
- veiðiferðir
Nánari upplýsingar í síma 487 5700 eða tölvupósti: hotelranga@hotelranga.is
