Draumabrúðkaupið á Hótel Rangá

Hótel Rangá býður brúðhjónum upp á ógleymanlega stund í glæsilegu umhverfi.

Hótel Rangá er fjögurra stjörnu lúxushótel á Suðurlandi. Öll umgjörð er hin glæsilegasta og hótelið er því tilvalin staðsetning fyrir brúðkaup og brúðkaupsafmæli. Hótelið er staðsett í fallegu umhverfi við bakka Rangár, þar sem glæsileg hönnun, metnaðarfullur matseðill og notalegt andrúmsloft gera upplifunina ógleymanlega. Hótel Rangá er meðlimur Great Hotels of the World, alþjóðlegrar hótelkeðju og hlaut nýlega viðurkenningu sem “Best Resort Hotel in Europe” eða besta sveitahótel í Evrópu frá International Hotel Awards í samstarfi við Bloomberg sjónvarpsstöðina.

    

Undirbúningur brúðkaupsins

Hótel Rangá sérhæfir sig í skipulagningu brúðakaupa, hvort sem er í Oddakirkju eða úti í náttúrunni í nágrenni einstakra náttúruperla, eins og til dæmis við Skógafoss eða Seljalandsfoss. Hótelið getur tekið að sér allan undirbúning fyrir brúðkaupið, s.s. blómaskreytingar, hárgreiðslu, myndatöku o.fl. Allar hugmyndir eru skoðaðar, endilega hafið samband og við sjáum hvað við getum gert.

Fyrsta flokks aðstaða

Á Hótel Rangá er dekrað við brúðhjónin og gesti þeirra. Hægt að skella sér í nudd og láta þreytuna líða úr sér í heitu pottunum. Svíturnar á Hótel Rangá eru glæsilegur valkostur fyrir brúðkaupsnóttina en hótelið býður upp á sjö svítur, þar af glæsilega brúðarsvítu, auk sex heimsálfusvíta. Á Hótel Rangá er fyrsta flokks veitingastaður með þremur veislusölum og fallegri setustofu sem hentar fyrir veislur fyrir allt að 200 manns.

Gjafabréf

Gjafabréf Hótel Rangá eru sívinsæl og eru tilvalin gjöf handa brúðhjónum og hjónum sem fagna brúðkaupsafmæli. Kynntu þér úrval gjafabréfa á Hótel Rangá.

Njóttu þess að skjótast í rómantíska dekurferð á Hótel Rangá

Hótel Rangá er tilvalin staður til að heimsækja og njóta rómantískra daga og dekra við sig í mat og drykk. Skreppa í nudd og heitu pottana og njóta útsýnisins og kyrrðar sveitasælunnar og norðurljósanna á veturna. Hótelið er aðeins í rétt rúmlega klukkustunda fjarlægð frá höfuðborginni. Hafðu samband og kynntu þér tilboðin okkar!

Inspired by Iceland