• English
  • Íslenska
  • Russia
  • Hrauneyjar
  • Hotel Highland
  • Hotel Skogar
  • Hotel Ranga
  • All Season Hotels
  • Heim
  • Upplýsingar
  • Gisting
  • Verð
  • Gjafabref
  • Veitingar
  • Fundir og ráðstefnur
  • Afþreying
  • Áhugaverðir staðir
  • Landakort
  • Myndir og 360
  • Hafa samband
  • Sértilboð
  • To pass validation of validator.w3.org..in case ther's no sub navigation
  • Gjafabréf
  • Sértilboð
  • Video og Vefmyndavél
  • Fréttir
  • 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
  • 28.08.2010 Summer is almost gone - Welcome back to The Age of Aurora
  • 12.06.2010 Summer is here
  • 28.05.2010 Become a fan on Facebook & win Prizes. Twitter, NEW Youtube video & Flickr too!
  • 04.05.2010 Latest Eyjafjallajökull volcano update!
  • Meira..

Mailinglist

Join our mailing list and recieve great offers Sign up
  • You are here:
  • hotelranga.is
  • IS

Velkomin á Hótel Rangá

Sértilboð í September
Kynnið ykkur sértilboð til veiðimanna í Rangá
og sælkeratilboð í september hér
.

Þyrluflug frá Hótel Rangá
Þyrluflug að Eyjafjallajökli er hafið á ný frá Hótel Rangá. 
Ekki missa af einstöku tækifæri til að skoða jökulinn og eldstöðina í návígi.

Nýlega nefnt eitt af 100 bestu hótelum í Evrópu af Sunday Times í Bretlandi, Hótel Rangá er fjögurra stjörnu lúxus hótel, staðsett á Suðurlandi mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Útsýni frá hótelinu er er stórkostlegt, Hekla blasir við til norðurs, síðan er fjallahringurinn til austurs og norðausturs, í suðaustri trónir svo Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar í suðri.

Hótel Rangá er byggt í bjálkastíl og hefur orðstír hótelsins aukist jafnt og þétt vegna hlýlegrar gistiaðstöðu, frábærrrar þjónustu og sælkera matar. Nýverið bauðst Hótel Rangá að gerast meðlimur í glæsilegum alþjóðlegum hótelsamtökum "The Special Hotels of the World".  Margir þekktir einstaklingar jafnt innlendir sem erlendir hafa heimsótt okkur, brúðhjón eyða gjarnan brúðkaupsnóttinni hjá okkur enda vinsæll áningastaður vandlátra ferðalanga.

Hótel Rangá var stækkað árið 2007 og svo aftur 2008 og eru nú 52 herbergi í boði, þ.m.t. fjórar Royal svítur, fjórar Junior svítur og eru sjö af þeim svítum innréttaðar í anda heimsálfanna sjö. Við köllum þessar svítur "The World Pavillion"  enda er hægt að fara umhverfis jörðina á sjö dögum hér á Hótel Rangá.  Auk þess bjóðum við upp á 24 Superior herbergi og 20 Deluxe herbergi, öll þægileg og vel útbúin.

Veitingastaður Hótel Rangár er löngu orðinn landsþekktur fyrir frábæran mat og gott úrval gæðavína.  Önnur aðstaða á hótelinu er mjög góð, setustofur uppi og niðri, glæsilegur bar, tvö nuddherbergi, leikjaherbergi og heitir útipottar.  Yfir vetrartímann er Hótel Rangá vinsæll áningastaður þeirra sem vilja skoða norðurljósin.

Hótel Rangá býður glæsileika og góða þjónustu:

  • Metnaðarfull þjónusta, lúxus og hvíld.
  • Eina 4 stjörnu hótelið á Suðurlandi
  • Mikil þjónustulund og fagfólk við störfin.
  • Hótelið var kosið "besta sveitahótelið á Íslandi árið 2004" af Octopus Travel
  • Hótelið var kosið Great Wedding destination ( Frábær staður fyrir hveitibrauðsdagana !) í alheimsskeppni meðal sjónvarpsáhorfenda GMTV í London.
  • Rómantískur staður fyrir brúðkaupsveislur, brúðkaupsnóttina og aðrar hátíðlegar stundir í fjölskyldunni.
  • Hlýleg herbergi - öll með baðkari.
  • Rómaður veitingastaður af bestu gerð, með útsýni yfir Eystri - Rangá.
  • Nýr matseðill í hverjum mánuði - fer eftir árstíðum og fleiru.
  • Aðeins er rúmur klukkutíma akstur til Reykjavíkur, en við erum við þjóðveg eitt.
  • Heitir pottar utandyra og sér verönd við hvert herbergi.
  • Bjóðum upp á nudd og slökun.
  • Frábær staðsetning fyrir fundi og ráðstefnur, vinnufundi, sameflingu starfsfólks.
  • Frítt háhraða internet samband.
  • Mjög margt áhugavert til að skoða er innan seilingar.
  • Erum þekk fyrir góða aðstöðu til að skoða norðurljósin, þegar þau sjást.
  • Útvegum stangaveiðileyfi, golf, hestaferðir, river rafting, vélsleðaferðir, fjórhjólaferðir (ATV) eða jeppaferðir

Skoða video frá Hótel Rangá hér

Skoða loftflug yfir Rangá hér

Prenta | Senda á vin
  • Activities - To Do

    Hunting in Iceland has only recently been embraced by foreign sportsmen, and the few who have made the...

    Read More
  • Attractions - To See

    North of the villages of Hella and Hvolsvöllur is the ancient farm of Keldur. The farm is mentioned in...

    Read More
  • Photo Gallery

    Open galleries
  • Hótel Rangá
  • 851 Hella
  • Ísland
  • Sími: (354) 487 5700
  • Fax: (354) 487 5701
  • E-mail: hotelranga@hotelranga.is