• English
  • Íslenska
  • Russia
  • Hrauneyjar
  • Hotel Highland
  • Hotel Skogar
  • Hotel Ranga
  • All Season Hotels
  • Heim
  • Upplýsingar
  • Gisting
  • Verð
  • Gjafabref
  • Veitingar
  • Fundir og ráðstefnur
  • Afþreying
  • Áhugaverðir staðir
  • Landakort
  • Myndir og 360
  • Hafa samband
  • Sértilboð
  • To pass validation of validator.w3.org..in case ther's no sub navigation
  • Gjafabréf
  • Sértilboð
  • Video og Vefmyndavél
  • Fréttir
  • 12.06.2010 Summer is here
  • 28.05.2010 Become a fan on Facebook & win Prizes. Twitter, NEW Youtube video & Flickr too!
  • 04.05.2010 Latest Eyjafjallajökull volcano update!
  • 04.05.2010 Volcano News
  • 14.04.2010 Another Volcanic Eruption
  • Meira..

Mailinglist

Join our mailing list and recieve great offers Sign up
  • You are here:
  • hotelranga.is
  • IS
  • Gisting

Gisting á Hótel Rangá, fjögurra stjörnu hótelherbergi


Við erum með 24 Superior herbergi, hvert herbergi er 18m².
Öll herbergin eru með tveimur rúmum, en þeim má auðveldlega breyta í hjónarúm ef vill. Á öllum herbergjunum er sími, skrifborð og stóll, minibar, útvarp og sjónvarp með gervihnattadisk og við náum m.a bæði CNN, Sky og fl. Baðherbergin eru með baðkari og sturtu, einnig hárþurrku til afnota. Herbergin snúa annað hvort að Eystri Rangá, sem rennur hér hjá og þá er heiti potturinn fyrir utan gluggann, ásamt sér verönd við hvert þessara herbergja, eða þau snúa þannig að útsýni er til Heklu. (6 af þessum herbergjum eru með nuddbaðkari.)

Við erum með 20 Deluxe herbergi, hvert herbergi er 26m².
Í fimm deluxe herbergjanna er tvíbreitt hjónarúm, King size dýna, eitt herbergið er með tveimur rúmum, öll herbergin eru búin CD og DVD spilurum, skrifborði og stól, útvarpi og sjónvarpi, en við náum bæði CNN og Sky um gervihnattadisk, sófa og minibar. Á baðinu er nuddbaðkar og sturta, hárþurrka er til afnota ásamt baðslopp. Herbergin snúa annað hvort þannig að útsýni er til Heklu eða yfir Eystri Rangá, en þau herbergi hafa sér verönd.

Konungleg "Royal" svítan er 74 ferm.
Í konungasvítunni er m.a. tvöfalt luxus King sized rúm, heitt lúxus nuddbaðkar, lúxus baðherbergi með tveimur sturtum, baðsloppum og hárþurrku. 2 auka svefnsófar, lúxus húsbóndastólar, 3 fataskápar, lúxus skrifborð og skriborðsstóll, 2 barir, kæliskápur, 2 flatskjáir þar nærð þú auk innlendra stöðva, CNN, Sky og fleiri, CD og DVD spilarar með hljóðkerfi. Útsýni til þriggja átta, m.a. til Heklu og að Eystri Rangá. Stærð svítunnar er 74 m².

"World Paviilion" svíturnar
"World Pavilion" eða heimsálfu-svíturnar á Hótel Rangá eru sannarlega einstakar. Hver og ein svíta er þemuð eftir einni af heimsálfunum sjö.  Það þýðir að öll hönnun, innréttingar, efni, húsgögn og listaverk í hverri svítu fyrir sig eru frá viðkomandi heimsálfu og gefur gestunum þá tilfinningu að þeir séu að stíga inn í annan heim.

Fyrir bókanir og fyrirspurnir, vinsamlega sendið okkur netpóst á hotelranga@hotelranga.is

Við viljum taka eftirfarndi fram:

  • Morgunverður er borinn fram frá klukkan 07:00 til 10:00 frá 1. júní til 1. október, frá klukkan 08:00 til 11:00 í apríl, maí og október og frá klukkan 09:00 til 11:00 í nóvember til og með mars.
    Hádegisverður er einungis borinn fram fyrir þá, sem panta fyrirfram. A la carte hádegisverður er þó borin fram frá júní til og með ágúst, frá klukkan 12:00 til 15:00.
    Kvöldverður er borinn fram alla daga, frá klukkan 19:00 til 22:00. Barinn er opinn í miðri viku frá klukkan 12:00 til 24:00, en um helgar er barinn opinn frá klukkan 12:00 til klukkan 3:00 að nóttu eða lengur.
  • Ef þú biður okkur sérstaklega, þá berum við gjarnan töskurnar fyrir þig, þegar þú kemur eða þegar þú ferð, en það kostar 400.- krónur í hvort skipti.
  • Herbergjaþjónusta er allan sólarhringinn, þér að kostnaðarlausu.
  • Hótelmóttakan er opin allan sólarhringinn.
  • Næturvörður er í húsinu frá klukkan 24:00 til klukkan 7:00 að morgni. Ef þið komið mjög seint að kvöldi eða viljið fara snemma, vinsamlega látið hótelið vita um það áður en þið komið, því við rukkum ykkur aukalega um kr 3.000.- vegna seins úttékks. Við þurfum að staðfesta þetta við ykkur, áður en þið komið.
  • Allt hótelið er reyklaust, þ.e. öll herbergin, móttakan og veitingastaðurinn. Ef þetta er ekki virt veldur það gestum okkar óþægindum og við munum krefja ykkur um kr 10.000.- aukalega til að gera herbergið sem þið dvölduð í extra hreint aftur.
  • Öll herbergin eru á jarðhæð, en engin lyfta er í húsinu. Ráðstefnusalurinn er á annari hæð hótelsins. Góð bílastæði eru við húsið.
  • Auka rúm getið þið fengið, en eingöngu í deluxe herbergin, það kostar kr. 5.000.-
  • Hótelið er lokað 24. & 25. desember og 31. desember & 1. janúar. Hópa sem panta og staðfesta 14 herbergi eða meira á brúttó verði hótelsins, bjóðum við þó velkomna þessa daga. Á landsbyggðinni eru ekki mörg hótel opin um jól og áramót, en Hótel Rangá er eitt af þeim, samkvæmt framansögðu.
  • Við leyfum ekki gæludýr á hótelinu.
  • Til upplýsinga - svo hópar geti fengið bókun staðfesta á Hótel Rangá - þá er eftirfarandi stefna ríkjandi:
    Hópar sem gista 3 nætur verða að snæða kvöldverð fyrstu 2 kvöldin á Hótel Rangá. Þriðja kvöldinu ráða þau sjálf. Eins er ef hópar gista 4 nætur þá er skilyrði að 3 kvöld af þessum 4 séu með kvöldverði á Hótel Rangá. Þetta er gert til að við getum séð okkur fært að vera með fyrsta flokks matreiðslumenn/starfsfólk á ársgrundvelli. Undantekningar eru aðeins samþykktar þegar bókanir eru gerðar og staðfestar beint á Hótel Rangá í gegn um tölvupóst og þá í samráði við starfsfólk Hótel Rangár.

Prenta | Senda á vin
  • Hótel Rangá
  • 851 Hella
  • Ísland
  • Sími: (354) 487 5700
  • Fax: (354) 487 5701
  • E-mail: hotelranga@hotelranga.is