- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 07.06.2011 Hotel Highland and Fossbúð
- 23.05.2011 The eruption in Grímsvötn continues
- Meira..
Áhugaverðir staðir : Eldgjá og Ófærufoss
Eldgjá er u.þ.b. 40 km löng gossprunga. Eldgjá er ekki langt frá Lakagígaröðinni, telst vera hluti að sömu eldstöð og Katla. Hún er einstakt náttúrufyrirbæri, sem talið er hafa myndast í stórgosi í kringum árið 900. Eldgjá er á náttúruminjaskrá. Mikil hraunflóð hafa runnið frá Eldgjá niður um Landbrot og Meðalland og til sjávar við Alviðruhamra í Álftaveri. Fyrsta eldgos í Eldgjá sem sögur fara af, var árið 934, þá er áætlað að runnið hafi frá eldstöðinni um 18 km³ af hrauni, þakkti það um 700 km², er það eitt mesta hraunrennsli sem orðið hefur á sögulegum tíma hér á landi. Hægt að aka nokkurn spöl inn í Eldgjá og ganga þaðan að Ófærufossi í Nyrðri-Ófæru. Óhætt er að mæla með göngu upp á Gjátind, þaðan sem útsýni er frábær yfir Eldgjá, til fjalla við Langasjó og Síðuafrétt með Lakagígum.
Eldgjá á Fjallabaksleið nyðri, er á milli Landmannalauga og Kirkjubæjarklausturs, 64°14′4.74″N, 18°24′11.27″W. gjáin er dýpst 270 m. og þar sem hún er víðust er hún um 600 m.
Þekktur ferðamannastaður er við fossinn Ófærufoss, innst í gjánni. Steinbogi var í fossinum, sem gerði hann óvenju fallegan, en hann féll árið 1993.
Myndin til hægri af Ófærufossi er frá isafold.de




