- 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
- 28.08.2010 Summer is almost gone - Welcome back to The Age of Aurora
- 12.06.2010 Summer is here
- 28.05.2010 Become a fan on Facebook & win Prizes. Twitter, NEW Youtube video & Flickr too!
- 04.05.2010 Latest Eyjafjallajökull volcano update!
- Meira..
Áhugaverðir staðir : Dyrhólaey og Reynisdrangar
Dyrhólaey er 120 metra hár höfði, talinn syðsti oddi landsins, ekki langt vestan við Vík i Mýrdal. Náttúran og sjórinn hafa í sameiningu grafið holu eða dyr í gegn um klettinn og hlýtir hann nafn sitt þar af. Þegar sjórinn er lign geta skip siglt í gegn um gatið. Flugvél hefur einu sinni flogið þar í gegn, en til þess þurfti alveg sérstakar veðurfarslegar aðstæður !
Af Dyrhólaey er fagurt útsýni. Meginlandið er talið hafa orðið til í neðansjávareldgosi seint á ísöld, ekki ólíkt því og þegar Surtsey myndaðist. Nokkrir klettar eru í sjónum fyrir utan Dyrhólaey, hæstur er Háidrangur 56 m hár. Dyrhólaey hefur verið fríðlýst síðan 1978. Höfðinn var þekktur meðal sjómanna erlendis og kölluðu þeir hann "Blow hole". Víða má sjá sæsorfin form í klettunum meðfram ströndinni, ekki er síðra að horfa á öldurnar leika við klettaveggina, þau eru ótrúleg listaverkin sem náttúran skapar.
Sagan segir að Reynisdrangar hafi myndast þegar tvö tröll voru að draga þrímastrað skip á land. Þegar birti af degi breyttust þau í steina. "Möstrin" sjást greinilega frá Vík í Mýrdal, en þau hæstu eru um 66 metrar á hæð.
Fuglalíf er mikið á þessum slóðum, þar á meðal er lundi í höfðanum, einnig eru andategundir nokkrar svo og sjófuglar. Á vindasömum höfðanum stendur Dyrhólaeyjarviti og vísar sæfarendum leiðina. Farið varlega og gangið ekki út á brún á bjarginu, það getur verið laust í sér. Þú ættir ekki að fara á mis við að ganga niður að fjöruborðin þegar tiltölulega lignt er í sjóinn og horfa á ölduna koma á land, en farðu varlega, aldan getur komið skyndilega og mikið útsog er á þessum stað. Björgin og klettaveggirnir eru ótrúlega fallegir og það er ekki síðra að horfa upp eftir þeim úr fjöruborðinu, nokkuð óvenjulegt sjónarhorn á þessum stað.
Selir eru í sjónum fyrir utan og sjást þeir oft.



