- 12.06.2010 Summer is here
- 28.05.2010 Become a fan on Facebook & win Prizes. Twitter, NEW Youtube video & Flickr too!
- 04.05.2010 Latest Eyjafjallajökull volcano update!
- 04.05.2010 Volcano News
- 14.04.2010 Another Volcanic Eruption
- Meira..
Velkomin á Hótel Rangá
Nýlega nefnt eitt af 100 bestu hótelum í Evrópu af Sunday Times í Bretlandi, Hótel Rangá er fjögurra stjörnu lúxus hótel, staðsett á Suðurlandi mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Útsýni frá hótelinu er er stórkostlegt, Hekla blasir við til norðurs, síðan er fjallahringurinn til austurs og norðausturs, í suðaustri trónir svo Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar í suðri.
Hótel Rangá er byggt í bjálkastíl og hefur orðstír hótelsins aukist jafnt og þétt vegna hlýlegrar gistiaðstöðu, frábærrrar þjónustu og sælkera matar. Nýverið bauðst Hótel Rangá að gerast meðlimur í glæsilegum alþjóðlegum hótelsamtökum "The Special Hotels of the World". Margir þekktir einstaklingar jafnt innlendir sem erlendir hafa heimsótt okkur, brúðhjón eyða gjarnan brúðkaupsnóttinni hjá okkur enda vinsæll áningastaður vandlátra ferðalanga.
Hótel Rangá var stækkað árið 2007 og svo aftur 2008 og eru nú 52 herbergi í boði, þ.m.t. fjórar Royal svítur, fjórar Junior svítur og eru sjö af þeim svítum innréttaðar í anda heimsálfanna sjö. Við köllum þessar svítur "The World Pavillion" enda er hægt að fara umhverfis jörðina á sjö dögum hér á Hótel Rangá. Auk þess bjóðum við upp á 24 Superior herbergi og 20 Deluxe herbergi, öll þægileg og vel útbúin.
Veitingastaður Hótel Rangár er löngu orðinn landsþekktur fyrir frábæran mat og gott úrval gæðavína. Önnur aðstaða á hótelinu er mjög góð, setustofur uppi og niðri, glæsilegur bar, tvö nuddherbergi, leikjaherbergi og heitir útipottar. Yfir vetrartímann er Hótel Rangá vinsæll áningastaður þeirra sem vilja skoða norðurljósin.
Hótel Rangá býður glæsileika og góða þjónustu:
- Metnaðarfull þjónusta, lúxus og hvíld.
- Eina 4 stjörnu hótelið á Suðurlandi
- Mikil þjónustulund og fagfólk við störfin.
- Hótelið var kosið "besta sveitahótelið á Íslandi árið 2004" af Octopus Travel
- Hótelið var kosið Great Wedding destination ( Frábær staður fyrir hveitibrauðsdagana !) í alheimsskeppni meðal sjónvarpsáhorfenda GMTV í London.
- Rómantískur staður fyrir brúðkaupsveislur, brúðkaupsnóttina og aðrar hátíðlegar stundir í fjölskyldunni.
- Hlýleg herbergi - öll með baðkari.
- Rómaður veitingastaður af bestu gerð, með útsýni yfir Eystri - Rangá.
- Nýr matseðill í hverjum mánuði - fer eftir árstíðum og fleiru.
- Aðeins er rúmur klukkutíma akstur til Reykjavíkur, en við erum við þjóðveg eitt.
- Heitir pottar utandyra og sér verönd við hvert herbergi.
- Bjóðum upp á nudd og slökun.
- Frábær staðsetning fyrir fundi og ráðstefnur, vinnufundi, sameflingu starfsfólks.
- Frítt háhraða internet samband.
- Mjög margt áhugavert til að skoða er innan seilingar.
- Erum þekk fyrir góða aðstöðu til að skoða norðurljósin, þegar þau sjást.
- Útvegum stangaveiðileyfi, golf, hestaferðir, river rafting, vélsleðaferðir, fjórhjólaferðir (ATV) eða jeppaferðir
Skoða video frá Hótel Rangá hér
Skoða loftflug yfir Rangá hér
Þyrluflug frá Hótel Rangá
Þyrluflug að Eyjafjallajökli er hafið á ný frá Hótel Rangá.
Hvert flug tekur um 40 mínútur og kostar kr. 45.000,-
Ekki missa af einstöku tækifæri til að skoða jökulinn og eldstöðina í návígi.
-
Activities - To Do
Hella is the skydiving capital of Iceland. There is a possibility of participating in this adrenaline ...
Read More -
Attractions - To See
The swimming pool/hot spring Seljavallalaug is situated in a short and a narrow valley near the farm S...
Read More -
Photo Gallery
Open galleries



